 

Kolka Rún:
Kom í heiminn 6. júní 2006, kl. 10:44. Hún lét bíða eftir sér í heila 6 daga. Hún var 16 merkur og 52 cm þegar hún mætti á svæðið. Mæðgurnar þurftu að vera á spítalanum í 2 heila daga en voru sko glaðastar að komast heim til pabba.
Kolka er prinsessa og verður örugglega dekurgrís eins og mamma sín :)
Pabbi heldur því fram að hæun verði þægasta barn veraldar, ef annað komi í ljós þá eru það frostskemmdir...
Bóel Þöll:
Kom í heiminn 23. mars 2009, kl. 5.19. Hún var 17 merkur og 55 cm.
Henni fannst best í heimi að kúra í mömmu sinni og hrekkja hana, hún kom því ekki fyrr en 3 tímum áður en átti að neyða hana í heiminn! Hún þóttist ætla að koma 28. febrúar og sendi mömmu og fylgdarlið upp á spítala en hætti að sjálfsögðu við. Þannig að þegar hún loksins ákvað að koma varð mamma bara pirr.is, því hún var viss um að stelpan væri bara að stríða!
En við vorum komin upp á spítala klukkan 3:30 og svo heim í kúrið aftur klukkan 13.
Mömmu og pabba finnst stelpan vera algjört yndi og Kolka stóra sys elskar hana voðalega mikið. Og stóru stóru systkynin eru líka voðalega skotin í henni.
Það lýtur ekki út fyrir frostskemmdir og það er víst engar skemmdir þrátt fyrir að hún var útrunnin...
Við eigum hellings stóra fjölskyldu...
Mamma okkar heitir Anna Silla og pabbi okkar Óskar.
Við eigum allavegana þrjú systkini Elísu, Þengil Otra og Gísla Rúnar.
Við eigum fullt af ömmum og öfum.
Mamma og pabbi ákváðu að læsa síðunni. Lykilorðið er það sem pabbinn á það til að kalla Kolku. Þið sendið okkur bara póst ef þið vitið það ekki. Netfangið er annasilla@simnet.is.
|